Hver á forgangskröfuna?

Af hverju á ílsenski innlánstryggingasjóðurinn ekki forgang á þrotabú Landsbankans vegna Icesave? Er það kannski af því aðhann hefur ekki greitt trygginguna út, heldur fengið hana að láni hjá öðrum sem þar með á forgangskröfuna núna?

Lítum fyrst á hver munurinn er á þeirri leð sem farin var samningunum um greiðslu íslensku innistæðutryggingarinnar á Icesave og þeirri leið sem RHH segir að hefði átt að fara. 

A) Leið Ragnars: Innlán eru forgangskröfur, en þær hafa að auki innbyrðis forgangsröð þar sem íslenski innlánstryggingasjóðurinn er fyrstur, viðbótin frá breska innlánstryggingasjóðnum næst og ótryggð innlán í þriðja sæti.

B) Leið Icesavesamningsins: Innlán eru forgangskröfur, en þær hafa að auki innbyrðis forgangsröð þar sem íslenski og breski innlánstryggingasjóðurinn eru jafnsettir fyrstir, en ótryggð innlán í öðru sæti.

Ragnar bendir á að sá sem kaupir forgangskröfu, að hluta eða í heild, öðlast þar með forgangskröfuréttinn á hendur þrotabúinu, þannig sé þessu t.d. varið með tryggingasjóð launa.

En, breski innistæðutryggingasjóðurinn tryggir ekki aðeins mismun á íslensku (EES-bundnu) tryggingunni og þeirri bresku, heldur alla upphæðina upp að 50 þús pundum (eða evrum, mismunandi eftir fréttum!). Nú er breski innistæðutryggingasjóðurinn búinn að greiða innistæðueigendum á Icesave út alla þá tryggingu. Þannig "keypti" hann kröfuna á íslenska innistæðutryggingasjóðinn og er nú að gera kröfu á hann um að greiða íslenska hlutinn inn í breska tryggingasjóðinn. Það er þar af leiðandi breski innistæðutryggingasjóðurinn sem á kröfurétt á þrotabúið, en ekki sá íslenski.

Síðan er samið um það í þessum margumrædda Icesave samningi að það sem innheimtist úr þrotabúinu inn í breska tryggingasjóðinn, gangi hlutfallslega jafnt upp í þær kröfur sem íslenski tryggingasjóðurinn ábyrgist og þann hluta sem lendir eingöngu á breska sjóðnum. Þeir innistæðueigendur sem áttu fé inni á Icesave umfram þessar ábyrgðir koma svo næstir í kröfuröðinni, að þessum innistæðutryggingum greiddum.

Þótt 50 þúsund evra (eða punda) innistæðutrygging Breta sé umfram skylduna samkvæmt EES, þá er hún sett með breskum lögum, áður en Landsbankinn fór á hausinn, að vísu frekar skömmu áður.
Hefði íslenski innistæðutryggingasjóðurinn gengist strax við ábyrgð sinni og greitt sitt út strax, en ekki fengið það að láni hjá Bretum, hefði hann átt sjálfstæðan kröfurétt á þrotabúið og e.t.v. getað gert kröfu um fyrsta forgang, með breska tryggingasjóðinn í öðru sæti og ótryggðar innistæður í þriðja sæti, eins og RHH er að tala um.

En, hann átti ekki fé fyrir innistæðutryggingunni og þaðan af síður í gjaldeyri. Já, það er dýrt að vera fátækur. Og dýrara að vera féflettur af bankaræningjum.

Sökudólgarnir í Icesave málinu og bankahruninu öllu eru bankaræningjarnir, en ekki sú ríkisstjórn sem var kosin eftir hrunið og er að takast á við þá ábyrgð að koma þjóðarbúinu aftur í rekstarhæft ástand.

Ragnar H. Hall ætti nú að vita að það er ekki skiptastjóranum að kenna að þrotabúið fór á hausinn.


mbl.is Mistök í Icesave-samningnum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Kasper, Jesper og Jónatan stóðu sig vel í ræningjahlutverkunum og bæjarstjórinn Bastían, fylgdist með og lét sér vel líka!! Svo kom Soffía frænka til sögunnar........S.J. passar engan vegin inní þetta, hm, kemur svo sem ekki á óvart.

Ingimundur Bergmann, 14.7.2009 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Soffía Sigurðardóttir

Höfundur

Soffía Sigurðardóttir
Soffía Sigurðardóttir
Já, en, AF HVERJU?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ingolfsfjallsvindur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband