27.12.2007 | 23:27
Að selja á réttum tíma
Af hverju fær BTB Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins?
Í frétt ruv.is segir: Rökstuðningur dómnefndar fyrir vali á Björgólfi Thor sem viðskiptamanni ársins er sá að Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors, hafi selt eignarhlut sinn í nokkrum fyrirtækjum á árinu með góðum hagnaði, auk þess sem Björgólfur yfirtók lyfjafyrirtækið Actavis og afskráði það úr Kauphöllinni.
Jahá, galdurinn er að hafa vit á að selja hlutabréf sín áður en þau falla í verði!
Hvað segir þessi frétt á visir.is annars?:
21. des. 2007 06:00
Samson selur fasteignaarm
Samson eignarhaldsfélag ætlar á næstu vikum að selja fasteignaarm félagsins Samson Properties ehf. að því er fram kemur í skráningarlýsingu sem félagið birti í Kauphöllinni í gær.
Ekki kemur fram í lýsingunni hverjir geti verið kaupendur félagsins eða hvert söluverð þess komi til með að vera. Samson eignarhaldsfélag, sem er kjölfestuhluthafi í Landsbankanum, eignaðist Samson Properties á síðasta ári, segir í umfjöllun greiningardeildar Kaupþings um tilkynninguna. Fram kemur að ein helsta eign Samson Properties sé helmingshlutur í SG Nord Holding sem eigi helmingshlut í WTC, sem sé að þróa 129 þúsund fermetra háhýsi í Kaupmannahöfn. Þá á félagið tæpan þriðjung í Sjælsö Gruppen, en það er eitt stærsta fasteignaþróunarfélag Danmerkur og skráð í Kaupmannahafnarkauphöll OMX. - óká
Í hvaða ljósi skoða menn þá þessa frétt?:
Viðskipti | mbl.is | 20.12.2007 | 19:31
Fasteignaverð lækkaði í nóvember
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,5% í nóvember frá fyrri mánuði, samkvæmt útreikningum Fasteignamats ríkisins. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,1%, síðustu sex mánuði um 4,8% og síðustu 12 mánuði um 14,1%.
Rámar loks einhvern í að Davíð sjálfur sagði um daginn að fasteignaverð á Íslandi eigi eftir að lækka meira á næstunni?
Jamm, ekki seinna vænna að selja fasteignafélag með góðum hagnaði!
Viðskiptablöð veita viðurkenningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:45 | Facebook
Um bloggið
Soffía Sigurðardóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.